GOTT AÐ VITA
Algengar spurningar.
Almennt
Hvað er Klúbba?
Klúbba sameinar leiki, mönnun, umsóknir og utanumhald dómgæslu á einum stað fyrir félög og dómara.
Er Klúbba bara fyrir knattspyrnu?
Klúbba er byggð fyrir íslenskt íþróttastarf. Hafðu samband til að ræða þarfir félagsins þíns.
Hvernig fer innleiðing fram?
Við byrjum á stuttri kynningu, setjum félagið upp og förum saman yfir fyrstu skrefin.
Fyrir félög
Hvernig koma leikir inn í Klúbba?
Leikir eru skráðir eða fluttir inn með dagsetningu, tíma, velli, flokki og móti. Þeir birtast í dagatali og lista félagsins.
Getur félagið boðið dómurum beint?
Já. Félagið getur boðið ákveðnum dómara eða opnað laus sæti fyrir umsóknum úr dómarahópnum.
Geta fleiri en einn stjórnandi stjórnað félaginu?
Já. Fleiri stjórnendur geta haft aðgang að félaginu og unnið saman að dómarahaldinu.
Fyrir dómara
Er Klúbba án gjalds fyrir dómara?
Já. Dómarar greiða ekkert fyrir Klúbba, hvort sem þeir dæma fyrir eitt félag eða fleiri.
Getur dómari verið tengdur fleiri en einu félagi?
Já. Dómarinn notar einn aðgang fyrir öll félögin sín og sér verkefnin á einum stað.
Verð og greiðslur
Hvað kostar Klúbba?
Félög greiða mánaðarlega áskrift sem tekur mið af umfangi og leikjafjölda. Hafðu samband til að fá verð fyrir félagið.
Sjá verðskráHvernig virkar reikningsferlið?
Þóknanir byggja á staðfestri dómgæslu og fara í reikningsferli. Tenging við Konto fyrir reikninga og greiðslur er í vinnslu.
Öryggi
Hvernig er öryggi og persónuvernd háttað?
Aðgangur að upplýsingum fer eftir hlutverki og tengingu við félagið. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnunni.
PersónuverndarstefnaSjáðu Klúbba í notkun.
Bókaðu 30 mínútna kynningu fyrir félagið.