EIGINLEIKAR
Allt sem þarf til að halda utan um dómarahaldið.
Sjö hlutar sem vinna saman, frá fyrsta leik að uppgjöri.
01 · Leikir
Allir leikir félagsins á einum stað.
Leikir koma inn með dagsetningu, tíma, velli, flokki og móti. Dagatal og listi sýna hvað er framundan.

Dagatal og listi yfir alla leiki
Flokkur, deild, riðill og lota
Leikir skráðir eða fluttir inn
02 · Mönnun
Sjáðu hvað vantar áður en það verður vandamál.
Hvert dómarasæti sést með stöðu: laust, boð sent eða mannað. Úthlutaðu dómara úr hópnum eða skráðu handvirkt.
Staða hvers sætis í hverjum leik
Úthlutun úr dómarahópnum
Aðaldómari og aðstoðardómarar
03 · Dómarahópur
Fólkið á bak við leikina.
Haltu utan um dómara félagsins og verkefni þeirra. Bjóddu nýjum dómurum í hópinn með tölvupósti.

Prófíll hvers dómara
Aðgangsbeiðnir og boð í hópinn
Yfirlit yfir verkefni
04 · Umsóknir og boð
Dómarar sækja um. Félagið samþykkir.
Opnaðu sæti fyrir umsóknum eða bjóddu ákveðnum dómara. Samþykktu eða hafnaðu með einum smelli.
Umsóknir í ákveðin sæti
Bein boð með áminningu
Staða hvers boðs sést strax
05 · Skilaboð
Samskipti í samhengi.
Skilaboð milli félags og dómara á einum stað, í stað margra hópspjalla.

Samtöl við einstaka dómara
Ný skilaboð úr dómarahópnum
Tilkynning þegar svar berst
06 · Staðfestingar
Dæmt og staðfest.
Eftir leik er dómgæsla staðfest. Félagið sér hvaða leikir eru kláraðir og hvað bíður.
Staðfesting eftir leik
Yfirlit yfir óstaðfesta leiki
Saga hvers verkefnis
07 · Reiknings- og greiðsluferli
Frá staðfestri vinnu að greiðslu.
Þóknanir byggja á staðfestri dómgæslu og fara í reikningsferli. Tenging við Konto fyrir reikninga og greiðslur er í vinnslu.

Dómaragjöld eftir flokkum
Þóknun út frá staðfestum leikjum
Greiðslustaða sýnileg dómurum
Sjáðu Klúbba í notkun.
Bókaðu 30 mínútna kynningu fyrir félagið.