HVERNIG VIRKAR KLÚBBA
Frá leik að uppgjöri.
Átta skref sem Klúbba heldur utan um, svo félagið og dómarinn sjái alltaf hvar hver leikur stendur.
Leikur kemur inn
Leikurinn er skráður eða fluttur inn með dagsetningu, velli, flokki og móti.
Dómarasæti verða sýnileg
Hver leikur fær sín sæti með hlutverki og þóknun.
Félagið mannar eða opnar fyrir umsóknum
Dómarastjórinn úthlutar beint eða opnar sætið fyrir dómarahópinn.
Dómari sækir um eða fær boð
Dómarinn sér verkefnið í appinu og sækir um eða svarar boði.
Félagið staðfestir úthlutun
Umsókn er samþykkt og dómarinn fær leikinn í dagskrána sína.
Leikurinn fer fram
Allar upplýsingar um leikinn eru í appinu á leikdegi.
Dómgæsla er staðfest
Eftir leik er staðfest að dómgæslan fór fram.
Reiknings- og greiðsluferli tekur við
Þóknun byggir á staðfestri vinnu og fer í reikningsferli.
Sjáðu Klúbba í notkun.
Bókaðu 30 mínútna kynningu fyrir félagið.